Haustfundur HEÞ
Hinn árlegi haustfundur HEÞ verður haldinn í Hlíðarbæ fimmtudaginn 22. nóvember og hefst hann kl. 20:30 að er fram kemur í tilkynningu frá hrossaræktarsamtökunum.
„Að þessu sinni verða tvö áhugaverð erindi á dagskrá: Sigríður Björnsdóttir dýralæknir hrossasjúkdóma hjá MAST fjallar um áverka á keppnishrossum og Guðlaugur Antonsson fer yfir árið í hrossaræktinni.
Á fundinum verður tilkynnt um val á ræktunarbúi ársins á félagssvæðinu. 6 bú eru tilnefnd að þessu sinni. Þau eru í stafrófsröð: Efri-Rauðilækur, Komma , Litla-Brekka, Ós, Sauðanes og Sámsstaðir.
Ræktendur (félagsmenn HEÞ) þriggja efstu hrossa í hverjum flokki á árinu hljóta viðurkenningu. Auk þess mun efsta hross eftir aldursleiðréttingu (skv. viðmiðun BÍ) hljóta sérstök verðlaun. Allt áhugafólk um hrossarækt er hvatt til að mæta. Kaffiveitingar í boði samtakanna.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH