Sölusýning

  • 21. september 2014
  • Fréttir
Eiðfaxi Image

.

Hrossaræktardeild Hóla- og Viðvíkurhrepps með sölusýningu í tengslum við Laufskálarétt.

Hrossaræktardeild Hóla- og Viðvíkurhrepps ráðgerir að halda sölusýningu á hrossum, á Narfastöðum föstudaginn 26. September (Laufskálaréttarhelgina), ef nægur áhugi er til staðar.

Á Narfastöðum eru aðstæður til að taka á móti um 30 hrossum í stíur, reiðaðstaða inni í reiðhöll (ef vill) og 300 metra bein braut utandyra.

Opið hús frá kl: 15-18:30. Skráð hross þurfa að að vera komin í hús kl: 15. Hross verði sýnd í reið á braut frá kl: 16, 2-3 í senn.

Áhugasamir þurfa að senda upplýsingar um þátttöku og hross á netfang: [email protected] og/eða [email protected], fyrir kl 18:00 á þriðjudag svo útbúa megi sýningarskrá og upplýsingar sem komið verður fyrir á hverri stíu Þar komi fram hvert hrossið er (IS númer), ætt og uppruni, eigandi og símanúmer og kjarngóð en raunsönn lýsing á hrossinu auk hugmynda um verð eða verðflokk. Kjósi fólk fremur setja hross í verðflokk geta þeir verið:

A= að 500 þúsund, 
B= 500 þús.-1 milljón,
C = 1-1,5 milljónir,
D = 1,5-2 milljónir, 
E = 2-3 milljónir. 
F= 3+ milljónir
Skráningargjald er kr. 3000 fyrir hvert hross greiðist fyrir sýninguna á staðnum.

Léttar veitingar verða í boði.

Aðstandendur sýningarinnar áskilja sér rétt til að takmarka fjöldann ef út í það fer og óska fremur eftir hrossum í betri kantinum á þessa sýningu.

Að þessu standa stjórn hrossaræktardeildar Hóla- og Viðvíkurhrepps.

Ólafur Sigurgeirsson, Kálfsstöðum
Bergur Gunnarsson, Narfastöðum
Jóhanna Einarsdóttir, Skúfsstöðum.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link