Myndbandið afbakað

  • 4. desember 2012
  • Fréttir
Myndbandið afbakað

Aganefnd FT gerir ekki athugasemd við framgöngu ungrar tamningakonu sem sást á myndbandi vinna með hest í hringgerði í reiðhöll. Telur nefndin að myndbandið, sem fór eins og eldur um sinu á ljósvakamiðlum, að verið sé að reyna að koma höggi á tamningakonuna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem FT sendi frá sér:

 
„Í tilefni af myndbandi sem birt var nýlega af ungri tamningakonu vinna með hest í hringgerði í reiðhöll, sem gaf til kynna að óviðeigandi tamningaaðferðum væri beitt, sá stjórn Félags tamningamanna ástæðu til þess að fordæma þær aðferðir sem myndbandið túlkaði.
 
Félag tamningamanna gætir hagsmuna félagsmanna en gætir þess jafnframt að félagsmenn sýni af sér fagmennsku við tamningar á hrossum.  Stjórn Félags tamningamanna gerir þær kröfur til félagsmanna að tamningar og umgengni þeirra við hross sé til fyrirmyndar og að félagar sýni tamingahrossum nærgætni.
 
Í samræmi við lög Félags tamningamanna vísaði stjórn Félags tamningamanna umræddu máli til aganefndar félagsins til að málið mætti fá faglega og viðeigandi umfjöllun og úrlausn.
 
Aganefnd Félags tamningamanna hefur tekið málið fyrir að beiðni stjórnar Félags tamningamanna og komist að eftirfarandi niðurstöðu:
 
“Aganefnd Félags tamningamanna fundaði í Borgarnesi 29.11.2012 vegna erindis frá FT þann 20.11.2012. Aganefnd hefur horft á upprunalegt myndband óklippt og farið yfir önnur gögn málsins. Aganefnd gerir ekki athugasemdir við framgöngu tamningamannsins og sér ekki ástæðu til frekari íhlutunar. Það myndband sem birtist á ljósvakamiðlum er afbakað og tekið úr samhengi, verður ekki annað séð en það sé gert til að koma höggi á viðkomandi tamningamann.
 
Aganefnd Félags Tamningamanna.““

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link