Dópmál til meðferðar hjá FEIF

  • 10. janúar 2013
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Hestur á Mið-evrópska meistaramótinu 2012 greindist með ólögleg lyf í blóði. Mikil leynd hvílir yfir nafni knapa og hests.

Eitt hross á Mið-evrópska meistaramótinu, sem haldið var í Wehrheim í Þýskalandi síðastliðið sumar (Mid European Championships 2012 – Wehrheim) greindist með ólöglegt lyf í blóði á lyfjaprófi. Fjallað hefur verið lítillega um málið á heimasíðu FEIF, en ekki er getið um nafn knapans né hestsins.

Samkvæmt heimildum Hestablaðsins var málið kært til FEIF eftir að sýnið hafði verið greint. Því var hins vegar vísað frá vegna formgalla, þar sem sýnið var ekki greint á löglega tilgreindri stofu, en öll sýni tekin úr hrossum í hestaíþróttum eiga að fara á ákveðna rannsóknarstofu.

Nú hefur þýska Íslandshestasambandið IPZV hins vegar tekið málið upp á sína arma, en það reyndist eina lagatæknilega leiðin í stöðunni til að halda kærunni til streitu. Mikil leynd hvílir yfir því hver knapinn og hesturinn er. Þó hefur fengist staðfest hjá FEIF að knapinn er austurískur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link