Falleg athöfn fór fram í Stykkishólmi í dag til minningar um Vigni Jónasson
Minningarathöfn um Vigni Jónasson var haldin í Stykkishólmi í dag, laugardaginn 1.júní.
Mikill fjöldi fólks var viðstatt athöfnina og kom það víða að til að heiðra minningu Vignis. Fánaberar riðu hringinn á velli hestamannafélagsins í Stykkishólmi og trompetleikari spilaði undir reiðinni lagið “Á Sprengisandi”.
Það voru svo foreldrar Vignis og sonur hans sem afhjúpuðu minnisplatta til minningar um Vigni, sem staðsettur er á stórum steini, þar sem einnig er fánaborg félagsins.
Bróðurdóttir Vignis söng lag og vinir Vignis fóru yfir tilurð athafnarinnar og reifuðu í stuttu máli stórkostlegan feril hans. Lesið var ljóð að beiðni foreldra Vignis.
Í lokin var svo spilað á trompet lagið sem gjarnan er kallað “Ég er kominn heim”.
Að lokinni formlegri dagskrá voru léttar veitingar á boðstólum og var þá sýnt minningarmyndband með stuttum brotum frá ferli þessa öfluga knapa og góða drengs.
Minningin lifir
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH