Framhjóladrifni bolakálfurinn sem varð heimsmeistari
Þeir sem þekkja til lögfræðingsins Ragnars Tómassonar vita að hann hefur óþrjótandi eldmóð fyrir hestamennsku. Auk þess að rækta hross og ala af sér hestamenn hefur hann lagt mikið af mörkum í þágu ungra hestamanna, hestaíþróttarinnar og félagasamtaka hestamanna. Ragnar er frásagnamaður af guðs náð og var það því blaðamanni Eiðfaxa heiður að fá að hlýða á sögur hans af hestum og hestamönnum.
Margir muna eftir Fjölnir frá Kvíabekk en á honum varð Tómas Ragnarsson Evrópumeistarameistari í 250 m. skeiði og í samanlögðum fimmgangsgreinum aðeins 17 ára gamall, árið 1985.
“Í gamla daga þá gerði ég mikið af því að fá að sjá hrossin út í haga. Þá var ekkert atriði að kaupa tamið. Mér fannst það vera aukaatriði, því það var eitthvað sem maður gat unnið í seinna. Ég man eftir að hafa séð Fjölnir frá Kvíabekk þriggja vetra úti í haga og vildi strax kaupa hann. Andrés vildi ekki selja. Svo hringdi hann í mig ári síðar og bauð mér hann. Hann var þá byrjaður að temja Fjölni og sagðist halda að hann yrði vel vakur. Ég heyrði seinna að hann hefði sagt við menn að hann nennti ekki að ríða á svona „framhjóladrifnum bolakálfum” og átti þá almennt við afkvæmi Hrafns frá Holtsmúla. Ég hafði nú gaman að því að Fjölnir skyldi síðan verða sá hestur sem gerði veg Andrésar, vinar míns, hvað mestan og bar hróður hans víða.“
Viðtal við heiðursverðlaunahafann Ragnar Tómasson má nálgast í jólablaði Eiðfaxa.
Blaðið er á leið til áskrifenda en hægt er að panta áskrift í síma 511 6622 eða með því að senda tölvupóst á [email protected].
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH