Markaðsmálin á oddinn
Nú er lokið yfirferð hestamanna um starfsárið 2010, fundum og ráðstefnum lokið og menn fara að huga að árinu sem senn hefst…
Eiðfaxi hafði samband við Kristinn Guðnason, formann Félags hrossabænda og lagði fyrir hann nokkrar spurningar.
Ertu ánægður með starfsárið 2010?
„Ég er stoltur af því hve vel ýmis mál hafa unnist vel þrátt fyrir þetta afbrigðilega árferði sem við höfum upplifað.
Varstu ánægður með aðalfundinn?
„Já ég hlýt að vera það, mæting var nokkuð góð og umræður voru fjörugar. Ánægja var með spennandi verkefni sem eru á döfinni“.
Þú ert endurkjörinn sem formaður, hvað er það helsta framundan?
„Já, nú var bara kosið um formann og ég hafði reyndar hugsað mér að draga mig í hlé, en einhverjir þrýstu á mig að taka eitt tímabil enn þannig að ég mun reyna að starfa næstu 3 árin.
Fjárhagur félagsins er nokkuð góður og leyfir að eitthvað sé gert, en kannski getur þurft að sækja um styrki til einhverra ákveðinna verkefna.
Varðandi verkefni framundan, þau eru mörg en markaðsmálin munu verða á oddinum núna á næstunni. Við erum komnir í gang með mjög spennandi verkefni sem hefur hlotið heitið „Inprinted by origin“ eða „Mótaður af uppruna sínum“
Um er að ræða vef sem verður opnaður og fjallar um upplifunina af hestinum í upprunalandinu. Verið er að gera kvikmyndaupptökur af hestinum undir hinum ýmsu kringumstæðum. Allar myndir eru teknar af hestbaki þannig að kvikmyndatökumaðurinn tekur myndirnar sitjandi á hesti. Búið er að taka nokkur myndbrot fyrir austan, tildæmis af útreiðum um sandana, yfir ár og fleira. Hugmyndin er að vera með myndir úr hestaferð, stóðsmölun og fleiru sem skoðandinn þá upplifir.
Þessi vefur verður svo sendur fólki í fjölpósti, ekki ósvipað og gert var við átakið „Inspired by Iceland“ og jafnframt markaðssettur á alheimsvísu. Boðskapurinn er eins og nafnið gefur til kynna að hesturinn er mótaður af uppruna sínum og þeim staðháttum sem hestar búa við hér á landi og ætti að styrkja okkur í samkeppninni á erlendum markaði“.
Varstu ánægður með ráðstefnuna „Hrossarækt 2010“?
„Já, ég var það að flestu leyti. Hún var ágætlega sótt og maður skynjar áhuga á viðfangsefnunum. Erindin sem voru flutt um rannsóknarniðurstöður voru fróðleg og þessar rannsóknir eru allar nauðsynlegar og eiga eftir að verða til gagns. Það hefði þó verið betra ef að höfundar hefðu verið búnir að draga niðurstöður betur saman og gera úr þeim hagnýtar upplýsingar sem umhverfinu myndi nýtast sem leiðbeiningar. Ræktunarbúin sem hlutu tilnefningu í ár eru öll glæsileg og árangur þeirra sem hlutu hinn eftirsótta titil „Ræktunarbú ársins“ , þeirra Olil og Bergs, er að sjálfsögðu stórkostlegur“ sagði Kristinn að lokum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH