Lífið leikur við gesti
Skemmtileg stemning hefur myndast meðal áhorfenda við Hvammsvöll þar sem forkeppni í B-flokki gæðinga fer fram. Glæsilegar sýningar uppskera mikil fagnaðarlæti. Eiðfaxi tók nokkra áhorfendur tali og voru þeir kampakátir með sýningar morgunsins. „Þetta er svo yndislegt að það er „asnalegt“,“ segir Þröstur Gestsson hestamaður. Kári Arnórsson var á sama máli, sagði hestakostinn gríðarlega góðan, landsmótssvæðið væri til fyrirmyndar og vel færi um áhorfendur.
Áfram mun viðra vel á landsmótsgesti í Víðidal eftir hádegi þegar forkeppni í barnaflokki og ungmennaflokki fer fram.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH