Ný stjarna í röðum stóðhesta

  • 11. maí 2011
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Korgur frá Ingólfshvoli stimplar sig inn

Sex hross náðu einkunn inn á Landsmót á vorsýningu kynbótahrossa á Selfossi. Tveir hestar báru nokkuð af á sýningunni, stóðhestarnir Korgur frá Ingólfshvoli og Kristall frá Auðsholtshjáleigu.

Korgur er ný stjarna í röðum stóðhesta: léttbyggður, mjúkur, rúmur, hágengur, prúður á fax og tagl. Hann hlaut frábærar einkunnir. Fyrir sköpulag 8,39, fyrir kosti 8,42 og í aðaleinkunn 8,41. Klárhestur. Hann er með 9,5 fyrir hægt stökk og fegurð, og 9,0 fyrir hófa, fet, tölt, brokk, stökk og vilja.

Korgur er undan Leikni frá Vakursstöðum og Korgu frá Ingólfshvoli, sem er skyldleikaræktuð undan tveimur afkvæmum Ófeigs frá Flugumýri, þeim Geysi frá Gerðum og Golu frá Gerðum. Ræktandi Korgs er Björg Ólafsdóttir, sem er eigandi hestsins ásamt Artemisu Bertus. Hesturinn er sérlega vel þjálfaður og sýndur af Artemisu. Í senn mjúkur og öruggur í framgöngu.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link