Landsmót 2024 Landsmót í beinni útsendingu

  • 26. júní 2024
  • Tilkynning
Alendis streymisþjónustan mun sýna frá Landsmóti 2024 í beinni útsendingu.

Streymisveitan Alendis mun sýna frá Landsmóti 2024 í beinni útsendingu en mótið hefst á mánudag, 1. júlí. Í tilkynningu frá Alendis lofa þeir besta sætinu en fréttatilkynninguna er hægt að lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

Fylgstu með Landsmóti 2024 í beinni útsendingu á Alendis

„Frábærar fréttir fyrir hestaáhugafólk! Alendis streymisþjónustan mun sýna frá Landsmóti 2024 í beinni útsendingu. Landsmót 2024 hefst 1. júlí og stendur til 7. júlí. Bestu hestar og knapar landsins saman komnir á þessari mögnuðu hátið hestamanna.“

Þú ættir ekki að missa af Landsmóti

„Landsmót er ekki bara keppni; það er hátíð sem fagnar íslenska hestinum sem er þekkur fyrir gangtegundir og einstakt geðslag. Á landsmóti er keppt í mismunandi greinum, Gæðingakeppni A og B-Flokkur, barna, unglinga og ungmennaflokkum, Sporti fjórgangi, fimmgangi, tölti og gæðingaskeiði, Skeiðkappreiðar verða á sínum stað og öll bestu kynbótasýningar ársins.“

Besta sætið með Alendis

„Alendis færir þér allan viðburðinn beint heim í stofu eða í vasann. Allt frá glæsilegri opnunarhátíð til æsandi loka, þú missir ekki af neinu. Njóttu frábærrar umfjöllunar, athugasemda frá sérfræðingum og streymi frá öllu í beinni útsendingu.“

Auðvelt að skrá sig

„Það er einfalt að skrá sig hjá Alendis. Farðu einfaldlega á heimasíðuna þeirra, búðu til aðgang og þú ert tilbúinn að njóta allra viðburða í beinni. Þú getur horft bæði á í vafra og í appi. Hvort sem þú ert heima eða á ferðinni, Alendis tryggir hágæða, ótruflaða áhorfs upplifun.“

Vertu klár

„Skráðu þig á Alendis og gerðu þig tilbúinn fyrir viku af óviðjafnanlegri hestaupplifun. Landsmót 2024 verður ógleymanlegur viðburður og með Alendis hefur þú aðgang að besta sætinu í húsinu.“

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar