Appelsínugula liðið vinnur
Stórskemmtileg sýning Árbæjarhjáleigu sigraði í áhorfendakosningu milli tíu ræktunarbúa sem komu fram í gærkvöldi. Þau stigu því aftur á stokk í kvöld ásamt Auðsholtshjáleigu og Efri-Rauðalæk, klædd appelsínugulum búningum
Árbæjarhjáleiga er sannarlega á heimavelli hér á Gaddstaðaflötum. Kristinn Guðnason og fjölskylda standa að baki ræktuninni sem hófst árið 1992. Flaggskip búsins nú eru Vígar frá Skarði og Jarl frá Árbæjarhjáleigu sem fóru fyrir sýningunni.
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV