Stefnir í stórveislu!
Nú er allt orðið klárt fyrir veislu aldarinnar í Ölfushöllinni annað kvöld, en þá fer fram hin árlegaStóðhestaveisla, einn stærsti viðburður ársins hjá hrossaræktarfólki. Hestakosturinn að þessu sinni er magnaður, en áætlað er að um 50 hestar komi fram, ýmist einir eða fleiri saman í hóp. Í boði verður blanda af ungum og efnilegum folum á móti þrautreyndum og hátt dæmdum köppum úr röðum stóðhesta. Fram koma m.a. Óskasteinn frá Íbishóli, landsmótssigurvegararnir úr A-flokki Fróði frá Staðartungu og Ómur frá Kvistum. Heimsmethafinn Nói frá Stóra-Hofi, Sjóður frá Kirkjubæ, Konsert frá Korpu og Hrannar frá Flugumýri, hæst dæmdi hestur ársins í fyrra, með hvorki meira né minna en 9.16 fyrir hæfileika!
Gaumur frá Auðsholtshjáleigu og Loki frá Selfossi koma fram með afkvæmum og Galsi frá Sauðárkróki verður heiðraður.
Miðasala hefur rokgengið og ljóst að uppselt verður í fyrramálið, því er um að gera að tryggja sér miða sem allra fyrst vilji menn ekki missa af veisluhöldunum. Miðar fást á N1 í Borgarnesi, Mosfellsbæ, Ártúnshöfða í Rvk, Hveragerði, Selfossi og Hvolsvelli, sem og hjá Baldvini og Þorvaldi, Líflandi og Hestum og Mönnum.
Sýningin hefst kl. 20 og gerð verða tvö hlé. Allir sýningargestir fá bókina Stóðhestar 2013 afhenta við innganginn, en hún er 324 bls. að stærð og inniheldur upplýsingar um rúmlega 270 stóðhesta. Þar sem gert er ráð fyrir smekkfullu húsi eru gestir hvattir til að mæta tímanlega til að koma sér fyrir, hleypt verður inn í salinn kl. 19.
Það stefnir í stórskemmtilegt kvöld þar sem hægt verður að skoða úrval hesta sem í boði eru fyrir ræktendur á komandi sumri. Góðir hestar, skemmtilegt fólk og dúndrandi stemming – blanda sem getur ekki klikkað!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH