Kolka og Hrefna María slá í gegn

  • 8. júní 2012
  • Fréttir
Kolka og Hrefna María slá í gegn

Hrefna María Ómarsdóttir sýndi Kolku frá Hákoti nú í dag á Hellu og hlutu þær rosa flottan dóm eða 8,69 í aðaleinkunn. Kolka hlaut 8,44 fyrir sköpulag þar af 9,5 fyrir bak og lend og 9,0 fyrir samræmi og háls, herðar og bóga. Fyrir hæfileika hlaut Kolka hvorki meira né minna en 8,85 en hún hlaut 9,5 fyrir vilja og geðslag og 9,0 fyrir tölt, brokk og fegurð í reið. Enginn smá dómur á þessari dömu!.  Kolka er í eigu Hrefnu Maríu og Rósu Valdimarsdóttur. Kolka er undan Íkoni frá Hákoti og Frá frá Hákoti.

Til gamans má bæta því við að Kolka stóð efst á Landsmótinu í fyrra í hópi 5 vetra hryssna og er sem stendur efst í flokki 6 vetra hryssna fyrir þetta Landsmót. Spennandi verður að sjá hvort Kolka muni standa efst eftir Landsmótið í Fáki í sumar.

Meðfylgjandi er dómur Kolku: 

IS2006286428 Kolka frá Hákoti
Örmerki: 968000001802023
Litur: 2700 Brúnn/dökk/sv. einlitt
Ræktandi: Halldóra Hafsteinsdóttir, Markús Ársælsson
Eigandi: Hrefna María Ómarsdóttir, Rósa Valdimarsdóttir
F.: IS2002186435 Íkon frá Hákoti
Ff.: IS1996187336 Töfri frá Kjartansstöðum
Fm.: IS1994286104 Bella frá Kirkjubæ
M.: IS1995286428 Frá frá Hákoti
Mf.: IS1989184551 Þorri frá Þúfu í Landeyjum
Mm.: IS1990286414 Feykja frá Hala
Mál (cm): 141 – 137 – 63 – 142 – 28,5 – 17,5
Hófa mál: V.fr.: 9,0 – V.a.: 8,9
Sköpulag: 8,0 – 9,0 – 9,5 – 9,0 – 7,0 – 8,5 – 8,0 – 8,0 = 8,44
Hæfileikar: 9,0 – 9,0 – 8,5 – 8,5 – 9,5 – 9,0 – 7,5 = 8,85
Aðaleinkunn: 8,69
Hægt tölt: 8,0      Hægt stökk: 7,5
Sýnandi: Hrefna María Ómarsdóttir

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link