Ingimar Sveinsson með sýnikennslu „Af frjálsum vilja“

  • 19. mars 2013
  • Fréttir
Ingimar Sveinsson með sýnikennslu „Af frjálsum vilja“

“Hin sívinsæla sýnikennsla Ingimars Sveinssonar verður á Sörlastöðum föstudagskvöldið 22. mars kl 19:00. 

Ingimar segir frá og sýnir hvernig hann nálgast ósnerta hesta en hann hefur kallað þessa nálgun „Af frjálsum vilja“. Aðferðin hefur vakið mikla athygli og nú gefst Sörlamönnum og öðrum áhugasömum hestamönnum tækifæri til að sjá og heyra Ingimar beita þessari aðferð.
Ingimar mun sýna okkur það sem hann gerir yfirleitt á helgarnámskeiði. Hann mun halda stuttan fyrirlestur um aðferðir sínar, svo tekur hann algjörlega ósnerta fola og sýnir áhorfendum hvernig hann nálgast unghross samkvæmt sínum aðferðum. 
Þessa veislu ætti enginn að láta framhjá sér fara, og eru allir velkomnir!

Fyrirlesturinn hefst stundvíslega kl. 19:00 og aðgangseyrir er 1.500 krónur

Sjáumst á Sörlastöðum á föstudagskvöld en að sjálfsögður verður bjórsala á staðnum og einhverjar veitingar. 

Enn vantar okkur eitt ósnert trippi þannig að ef einhver áhugasamur vill nýta sér þessa frábæru tamningaaðferð, og getur mætt með það á Sörlastaði á föstudaginn, má sá hinn sami hafa samband á [email protected] eða 849-6643. Fyrstur kemur, FYRSTUR FÆR!,“ segir í tilkynningu frá fræðslunefnd

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link