KEA mótaröðin – úrslit frá lokakvöldinu
Lokakvöld KEA mótaraðarinnar var í gærkveldi og lukkaðist það mjög vel. Keppt var í slaktaumatölti og skeiði og voru 16 keppendur í tölti og 21 í skeiði. Óhætt er að segja að allir hafi skemmt sér konunglega og var gaman að horfa á keppnina.
Þorbjörn Hreinn Matthíasson sigraði slaktaumatöltið á Rommel frá Hrafnsstöðum með einkunnina 6,75. Þorbjörn var efstur í B úrslitum með einkunnina 6,25 og reið svo uppí fyrsta sætið í A úrslitum.
Æsispennandi var að sjá hver yrði stigahæsti knapinn þetta árið og var mjótt á munum. En Baldvin Ari sigraði skeiðið með glæsibrag á Prins frá Efri Rauðalæk á tímanum 5,09, setti nýtt hallarmet í Top Reiter höllinni og krækti sér þar í 10 dýrmæt stig. Baldvin og Prins settu nýtt hallarmet.
Lokastaðan í stigasöfnuninni var:
1 Baldvin Ari Guðlaugsson 32
2 Ásdís Helga Sigursteinsdóttir 30
3 Viðar Bragason 28
4 Þorbjörn Hreinn Matthíasson 18
5 Stefán Friðgeirsson 18
6 Stefán Birgir Birgisson 16
7 Birgir Árnason 12
8 Sveinn Ingi Kjartansson 10
9 Pétur Vopni Sigurðsson 9
10 Sveinbjörn Hjörleifsson 5
11 Guðmundur Karl Tryggvason 3
12 Þórhallur Þorvaldsson 2
13 Atli Sigfússon 2
14 Jón Björnsson 2
15 Höskuldur Jónsson 2
16 Anna Catharina Gros 1
17 Pernille Lyager Möller 1
18 Rasmus Christjansen 1
19 Sigmar Bragason 1
Mótshaldarar KEA mótaraðarinnar þakkar þátttakendum og áhorfendum kærlega fyrir frábært mót og hlakkar til að sjá ykkur öll að ári.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH