Brú milli áhuga og lífsstíls
Skráningar standa nú yfir í reiðhópana Vertu klár í hnakkinn hjá fyrirtækinu Íslenski hesturinn. Reiðhóparnir eru hugsaðir fyrir þá sem ekki hafa aðgang eða aðstæður til að halda hesta allt árið, en vilja samt eiga færi á að ríða út öðru hvoru. Í fyrra tóku um 45 manns þátt í hópunum og það á misjöfnum forsendum.
„Margir eru í þannig störfum að þeir geta ekki bundið sig við hestamennskuna á hverjum degi, en vilja þó geta komið reglulega og riðið út. Aðrir eru að stíga sín fyrstu skref og vilja fá nasasjónina af lífsstílnum áður en þeir sökkva sér ofan í hann. Sumir vilja smá leiðsögn til að undirbúa sig fyrir hestaferðir. Sumir sem komið hafa til mín eru að leita sér að hestum til kaups. Þeir geta þá fengið að prufa alls kyns hestgerðir og fundið hver hentar þeim,“ segir hestakonan og leiðsögumaðurinn Bergljót Rist sem rekur fyrirtækið Íslenski hesturinn sem staðsett er í Fjárborgum í Reykjavík.
Reiðhóparnir hittast einu sinni í viku í vetur og fara í útreiðartúra. „Fólk kemur og fær létta leiðsögn í hestamennsku. Síðan skemmtum við okkur saman, förum í útreiðatúra í fallegu umhverfi á góðum hestum,“ segir Bergljót.
Einnig býður Bergljót upp á hópinn Vertu klár – Stór og smár sem hugsaður er fyrir reiðfær börn og foreldra þeirra. „Þetta er ekki reiðskóli. Hins vegar hef ég heyrt af mörgum börnum sem biðja foreldra sína um hesta eftir að hafa umgengist þá í einhvern tíma t.d. í reiðskólunum. Vertu klár-stór og smár er þá leið sem ég býð upp á fyrir foreldra – til að þeir geti prófað og áttað sig á því hvort lífsstíllinn sé eitthvað sem þeir vilji hleypa inn í líf fjölskyldunnar og stunda með börnunum. Hér er því hægt að prófa hestamennsku án þess að þurfa að fjármagna grunnkostnaðinn strax. Þetta er því góður byrjunarreitur,“ segir Bergljót.
Fyrsti hópurinn af Vertu klár í hnakkinn leggur á í fyrsta sinn nk. sunnudag 18. september kl. 13 og hittist svo 10 sunnudaga í röð. Annar hópur hefur göngu sína nk. þriðjudag kl. 16.15.
Þátttökuverð er 37.500 kr. en veittur er 10% fjölskylduafsláttur ef tveir eða fleiri úr sömu fjölskyldu koma saman. Íslenski Hesturinn er með aðstöðu að Surtlugötu 3 í Fjárborgum og útvegar fyrirtækið hesta, reiðtygi og hjálma.
Skráningar og nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Íslenska hestsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH