Reiðnámskeið

  • 30. ágúst 2012
  • Fréttir
Reiðnámskeið

„Í byrjun september mun hestamannafélagið Fákur og Sif Jónsdóttir reiðkennari bjóða upp á námskeið fyrir þá sem vilja bæta færni sína og sjálfstraust sitt í hestamennsku.

Markmið námskeiðsins er að nemandinn fái skilning á atferli hestsins og hvernig hann bregst við mismunandi aðstæðum á eðlislægan hátt. Að efla leiðtogahlutverk knapans með því að tileinka sér rétta umgengni við hestinn og vinnubrögð. Að ábendingar knapans verði nákvæmari og markvissari sem leiðir til betri og öruggari samskipta á milli manns og hests.
 
Námskeiðið samanstendur af 8 verklegum tímum og 2 bóklegum tímum. Skráning fer fram á [email protected]

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link