KS-deildin: rásröð í fimmganginum
Næstkomandi miðvikudagskvöld verður keppt í fimmgangi í KS-Deildinni. Það verður örugglega mikil spenna í Svaðastaðahöllinni og hefst keppni kl 20:00.
Stigakeppnin er mjög jöfn og ljóst er að knapar mega ekki við miklum mistökum ætli þeir sér að vera áfram í baráttunni um efstu sæti.
Meðfylgjandi er rásröð.
1. Þorsteinn Björnsson – Kilja frá Hólum
2. Riika Anniina – Styrnir frá Neðri-Vindheimum
3. Þórarinn Eymundsson – Þóra frá Prestbæ
4. Þorbjörn H Matthíasson – Úði frá Húsavík
5. Bjarni Jónasson – Djásn frá Hnjúki
6. Líney María Hjálmarsdóttir – Þerna frá Miðsitju
7. Tryggvi Björnsson – Óðinn frá Hvítárholti
8. Magnús Bragi Magnússon – Vafi frá Ysta-Mó
9. Elvar E. Einarsson – Smáralind frá Syðra-Skörðugili
10. Mette Mannseth – Háttur frá Þúfum
11. Björn F. Jónsson – Dagur frá Vatnsleysu
12. Viðar Bragason – Sísí frá Björgum
13. Ísólfur Líndal Þórisson – Kraftur frá Efri-Þverá
14. Erlingur Ingvarsson – Blær frá Torfunesi
15. Ragnar Stefánsson – Maur frá Fornhaga II
16. Sölvi Sigurðarson – Gustur frá Halldórsstöðum
17. Ólafur Magnússon – Ódysseifur frá Möðrufelli
18. Heiðrún Ósk Eymundsdóttir – Venus frá Sjávarborg
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH