Framlengd skráning í Meistaradeild UMFÍ og LH

  • 10. febrúar 2011
  • Fréttir
Framlengd skráning í Meistaradeild UMFÍ og LH

Framlengdur hefur verið skráningarfrestur á fyrsta mót meistaradeildar UMFÍ og LH samkvæmd fréttatikynningu frá aðstandendum keppninar. Hægt er að skrá sig til leiks á netfanginu: [email protected] þar til kl. 23:00 í kvöld, fimmtudaginn 10. febrúar.

Mótið verður haldið í Reiðhöllinni í Víðidal laugardaginn 12. febrúar og verður keppt í fjórgangi og T2. Mótið er opið öllum unglingum og ungmennum 14 til 21 árs.

Greiða þarf við skráningu, skráningargjald er kr 2.000 á grein. Leggja þarf inn á reikning: 0338-26-301646
kennitala :020455-3659

Aðeins er hægt að skrá einn hest í hvora grein. Riðin verða A og B úrslit.

Mótið er tilvalið að fyrir þá sem vilja spreyta sig á að ríða meistaraprógramm, einn keppandi er inn á í einu í fjórgang en þrír keppendur í tölti T2.


Hvatt er til þess að hestaáhugafólk fylgjist með þessari stórskemmtilegri keppni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link