Miðasala hafin á Uppskeruhátíð hestamanna
Hátíðin mun fara fram þann 12. október í Gullhömrum. Á dagskránni eru verðlauna afhendingar fyrir knapa og ræktendur, steikarhlaðborð ásamt alvöru sveitaballi.
“Í fyrra seldist upp á hátíðina og hvetjum við því alla áhugasama um að tryggja sér miða í tíma,” segir í tilkynningu frá LH en miðasalan fer fram á heimasíðu LH. Verð á hátíðina er 14.900kr.
Þeir sem vilja bóka sig saman á borð er bent á að kaupa miðana sína í einni pöntun eða að öðrum kosti senda óskir um sætaskipan á joninasif@lhhestar.is.