Meistaradeild Ungmenna 2025
Opinn fundur um Meistaradeild Ungmenna var haldinn á Ingólfshvoli 10.sept 2024 og tókst mjög vel. Góð mæting var og fullt af nýjum andlitum ásamt keppendum frá liðunu keppnistímabili.
Meistaradeild Ungmenna verður í Ingólfshvoli og verður keppnisfyrirkomulag með mjög svipuðu sniði og á liðnu tímabili. Þrjú föstudagskvöld og tveir laugardagar. Verið er að festa dagsetningar og fleiri atriði varðandi deildina næstu daga.
Skráning er hafin og eiga lið að senda tölvupóst á [email protected] þær upplýsingar sem þurfa að koma fram er fullt nafn liðsmanna en þeir þurfa að vera fjórir talsins.
Skráningu lýkur 27.okt 2024
Keppnisgreinar eru
– fjórgangur V1
– fimmgangur F1
– tölt T1
– slaktaumatölt T2
– Gæðingalist 2.stig
– skeið í gegnum höllina
Ef einhver langar að taka þátt í deildinni en er ekki komin í lið getur einnig sent inn og getum við hjálpað til við að koma upplýsingum milli einstaklinga eða ef lið vantar einn liðsmann. Ekki er það þó á ábyrgð deildarinnar að fylla lið ef vantar liðsmann eða finna lið fyrir þá einstaklinga sem senda inn án þess að vera komin í lið. En upplýsingaflæði getum við hjálpað með.
Ef einhverjir einstaklingar langar að taka þátt í þessu stórkostlega verkefni með okkur þá endilega sendið okkur línu á [email protected] og við getum nýtt alla þá krafta sem okkur berast. Einnig ef þið vitið um einhverja sem geta hjálpa okkur við að framkvæma deildinna.
stjórnin
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Skráning opin á Metamót Spretts