Meistaradeild Líflands í hestaíþróttum Ein breyting á liði Hjarðartúns

  • 2. október 2024
  • Fréttir

Sigurlið Hjarðartúns sigurlið í MD 2020

Mikil spenna er alltaf fyrir Meistaradeildinni í hestaíþróttum en á þessum tíma er liðaskipan að verða klár.

Meistaradeildin í hestaíþróttum hefur göngu sína að nýju í janúar á nýju ári. Dagsetningar hvers keppniskvölds liggja nú þegar fyrir.

Lið Hjarðartúns hefur einu sinni sigrað í liða keppni Meistaradeildarinnar en það var árið 2020. Í fyrra varð liðið í fjórða sæti í liðakeppninni og ætlar sér sjálfsagt betri árangur á næsta keppnistímabili.

Ein breyting verður á liðinu en Elvar Þormarsson víkur og ætlar að taka sér hlé frá þátttöku í Meistaradeildinni næsta vetur. Í hans stað kemur inn í liðið Arnhildur Helgadóttir sem er ásamt manni sínum, Hans Þór Hilmarssyni, staðarhaldari að Hjarðartúni að öðru leyti er liðið óbreytt.

Lið Hjarðartúns skipa því:

Arnhildur Helgadóttir
Hans Þór Hilmarsson
Helga Una Björnsdóttir
Jakob Svavar Sigurðsson
Þórarinn Ragnarsson

Lið Hestvit/Árbakka

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar