Landsamband hestamanna Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH

  • 16. september 2026
  • Fréttir

Sigurbjörn Eiríksson formaður landsliðsnefndar LH og Vigdís Matthíasdóttir yfirþjálfari hæfileikamótunar LH. Ljósmynd: vefsíða LH

Gengið hefur verið frá samningi milli Landssambands hestamannafélaga og Vigdísar Matthíasdóttur um að hún taki við sem yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH til næstu tveggja ára. Samningurinn var undirritaður af Vigdísi og Sigurbirni Eiríkssyni, formanni landsliðsnefndar. Frá þessi var sagt í frétt á vefsíðu LH.

Í starfi sínu mun Vigdís bera ábyrgð á allri kennslu og faglegu utanumhaldi verkefnisins. Henni til halds og trausts á vinnuhelgum verða aðstoðarþjálfarar úr fremstu röð íslenskrar hestamennsku.
Vigdís er menntaður reiðkennari frá Háskólanum á Hólum og býr yfir áralangri reynslu af þjálfun barna og ungmenna, bæði innanlands og erlendis, auk reynslu af rekstri og stjórnun. Frá árinu 2021 hefur hún haft veg og vanda að barna- og unglingastarfi Hestamannafélagsins Fáks, þar sem hún hefur lagt áherslu á jákvæða og einstaklingsmiðaða nálgun. Hún hefur einnig fylgt ungum keppnisknöpum eftir á stórmótum á borð við Landsmót, Norðurlandamót, Heimsmeistaramót og FEIF Youth Cup.

Umsóknir opna á næstu dögum

Aðsókn í Hæfileikamótunina hefur farið vaxandi síðustu ár og verður fljótlega opnað fyrir umsóknir fyrir efnilega knapa í unglingaflokki. Dagskrá vetrarins verður með metnaðarfullu sniði þar sem lögð er megináhersla á knapann sem íþróttamann og afreksvitund hans. Þátttakendur fá markvissa verklega kennslu, fræðslu um skipulag þjálfunar og innsýn í kröfur afreksíþrótta.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link