Tvö Fjórðungsmót

  • 13. janúar 2013
  • Fréttir
Tvö Fjórðungsmót

Tvö fjórðungsmót munu fara fram í sumar, bæði austanlands og vestan. Allra jafna hafa Austlendingar og Vestlendingar skipst á að halda mótin þau ár sem Landsmót er ekki haldið. Árið 2007 var mótið haldið á Stekkhólma á Héraði, árið 2009 á Kaldármelum og var það því í höndum Austlendinga að halda mótið árið 2011. Af því var þó ekki, því stjórn hestamannafélagsins Hornfirðings ákvað að aflýsa því þegar ljóst varð að Landsmót yrði haldið á Vindheimamelum eftir færslu þess um eitt ár. 

Fjórðungsmót Austurlands mun því fara fram á  Fornustekkum Hornafirði 20.-23. júní nk. Fjórðungsmót Vesturlands fer svo fram á Kaldármelum 3.-7. júlí. Hlýtur það að teljast gleðifréttir að slík niðurstaða hafi náðst í umræðum um mótin. Fjórðungsmótin hafa verið með öðru sniði en Landsmótið, bæði styttri og léttara í forminu. Á mótunum ríkir afslappað andrúmsloft og sveitarómantíkin er í hávegum höfð. Í mótaskrá LH kemur fram að á Kaldármelum verði boðið upp á gæðingakeppni, World-ranking töltkeppni, kappreiðar og kynbótadóma.

Þessu tengt:
Verða haldin tvö Fjórðungsmót árið 2013?

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link