Æfingin skapar meistarann
Leó Hauksson varð í byrjun nóvember Íslandsmeistari í járningum. „Ég var í kringum 12 ára þegar ég byrjaði að járna. Ég hafði alltaf haft smá áhuga á þessu og byrjaði ég að hjálpa pabba. Síðan fór það að snúast við ég járnaði og hann aðstoðaði mig. Áhuginn jókst alltaf með árunum og fór ég að vinna við þetta með skólanum. Í dag er ég í fullu starfi við járningarnar og líkar það vel,“ segir Leó.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH