Gæðingamót Faxa og Skugga
Gæðingamót hestamannafélaganna Faxa og Skugga verður haldið í Borgarnesi 4. júní n.k. Keppt verður í barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, B flokki gæðinga og A flokki. Einnig í 150 m. skeiði ef þátttaka næst, handvirk tímataka. Mótið er einvörðungu ætlað félagsmönnum og hestum Faxa og Skugga.
Skráning er í gegn um Sportfeng og er Skuggi mótshaldari. Skráningargjöld eru kr. 2.500.- í ungmennaflokki, A og B flokki og í 150 m. skeiði en 1.500 – í barna – og unglingaflokki. Skráningu líkur kl. 23:59 miðvikudaginn 1. júní. Upplýsingar og aðstoð ef þarf í síma 898-4569 eða [email protected]
Mótanefnd Faxa og Skugga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH