Umsóknir í framhaldsskólanefndina í hestaíþróttum

  • 2. október 2013
  • Fréttir
Auglýsum eftir fólki sem hefur áhuga á að starfa í nefndinni í vetur.

Umsóknir um þátttöku í framhaldsskólanefnd hestaíþróttum hefur verið framlengd. Í nefndinni kemur saman ungt hestafólk sem stundar nám við menntaskóla og skipuleggjum við saman hið árlega framhaldsskólamót í hestaíþróttum, en þar taka skólar víðs vegar um land, þátt. Störf nefndarinnar eru fjölbreytt, áhugaverð og skemmtileg.

Við auglýsum því eftir fólki sem hefur áhuga á að starfa í nefndinni í vetur. Í umsókninni þurfa ykkar helstu upplýsingar að koma fram, fullt nafn, aldur, símanúmer, skóli og af hverju þið hafið áhuga á að vera í nefndinni, en einnig eru upplýsingar umfram þessar vel þegnar. Umsóknir þurfa að berast inn fyrir þann 8. október næstkomandi á [email protected]. Ef einhverjar spurningar vakna, getið þið haft samband við Arnar Heimi í síma 857-1755, Hinrik Ragnar 848-2344 eða sent e-mail á okkur. Ekki vera feimin!!

F.h. Framhaldsskólanefndarinnar í hestaíþróttum Arnar Heimir Lárusson og Hinrik Ragnar Helgason

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link