Reiðleiðir í Heiðmörkinni

  • 28. ágúst 2012
  • Fréttir
Reiðleiðir í Heiðmörkinni

„Hestamannafélagið Fákur boðar til opins fundar hestamanna um reiðleiðir í Heiðmörk. Fundurinn verður haldinn í félagsheimili Fáks nk. miðvikudagskvöld kl. 20:00.

Hjá Reykjavíkurborg er í kynningu nýtt deiliskipulag fyrir Heiðmerkursvæðið,en hægt er að gera athugasemdir við það til 12. september. Það er mjög mikilvægt til framtíðar litið að við hestamenn í Fáki, Gusti, Andvara, Sörla og fleiri nágrannafélögum hafi góðan aðgang að reiðleiðum í Heiðmörkinni og það yrði slæmt ef hún lokaðist að stórum hluta fyrir okkur hestamenn.
 
Endilega skoðið vel deiliskipulagskynninguna en hana er hægt að nálgast á vefnum á slóðinni;
http://www.reykjavik.is/Portaldata/1/Resources/skipbygg/skipulagsm_l/DU16_32_A1_Deiliskipulag-natturum-minna.pdf „

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link