Huga þarf vel að ferðahrossum
Morgunblaðið hefur eftir Sigríði Björnsdóttur, dýralækni hrossasjúkdóma, í morgun að engin ástæða sé til að hafa áhyggjur af ferðahrossum í sumar. Sigríður segir þetta ekki rétt eftir sér haft. Alls ekki sé hægt að útiloka að hross verði veik í hestaferðum, séu þau búin að taka smit áður en lagt er af stað í ferðina. Einnig er sá möguleiki fyrir hendi að hrossum slái niður.
„Það er full ástæða til að benda hestafólki á að fylgjast vel með hrossum sínum í hestaferðum og leggja ekki af stað með hross sem sýna einkenni eða hafa ekki jafnað sig að fullu. Hross eru einkennalaus í einhvern tíma, tvær til fjórar vikur, eftir að þau hafa tekið smit. Þannig að fólk verður að vera á varðbergi. Ég vil hvetja fólk til að undirbúa sig og gera ráðstafanir ef koma þarf veiku hrossi í skjól eða til byggða. Hrossum sem búin eru að fara í gegnum veikindaferlið ætti hins vegar að vera óhætt, hafi þau fengið tíma til að jafna sig og byggja upp þrek,“ segir Sigríður.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH