Miðasala er hafin á uppskeruhátíð Fáks og Spretts!
Uppskeruhátíð Fáks og Spretts fer fram í Arnarfelli í Sprettshöllinni föstudaginn 22. nóvember næstkomandi, húsið opnar 19:00.
Verðlaunaðir verða knapar í Fáki og Spretti í ungmenna, áhugamanna og meistaraflokki.
Á hátíðinni verður steikarhlaðborð frá Flóru með grillaðri nautalund, steiktri kjúklingabringu ásamt tilheyrandi meðlæti.
Þá mun hljómsveitin The Bookstore Band spila fyrir dansi að borðhaldi og verðlaunaafhendingu lokinni.
- Miðaverð á steikarhlaðborð og ball 11.900 krónur.
- Miðaverð á dansleik 2.990 krónur – Miðasala í afgreiðslu á viðburðinum. Húsið opnar 22:30 fyrir ballgesti.
Í meðfylgjandi hlekki er hægt að skrá sig fyrir miða á uppskeruhátíð Fáks og Spretts: