Hestamennska fyrir börn
Boðið verður upp á þá nýjung hjá hestamannafélaginu Spretti að börn frá 6 til 13 ára geta nú stundað hestamennsku 1x í viku, alls 8 skipti, á tímabilinu 7.okt. til 25.nóv. Allur búnaður er innifalinn, þ.m.t. aðgangur að hesti og nauðsynlegum búnaði. Kennt verður á þriðjudögum. Takmarkaður fjöldi þátttakenda. Kennarar eru Sigrún Sigurðardóttir, einn reynslumesti reiðkennari landsins, og Þórdís Anna Gylfadóttir, reiðkennari frá Háskólanum á Hólum. Lögð verður áhersla á bóklega kennslu, ásetuæfingar, ýmsa hestaleiki, sýnikennslur o.fl. en ekki almenna reiðkennslu. Skráning fer fram á heimasíðu Spretts, www.sprettarar.is, fyrir 1.okt. nk. Verð kr.18.000. ALLIR VELKOMNIR! Nánari upplýsingar gefa Sigrún s.896-1818 og Þórdís s.868-7432.