Hanna Rún í Hestablaðinu
í Hestablaðinu, sem kemur út á morgun, miðvikudaginn 25. mars er viðtal við Hönnu Rún Ingibergsdóttur, sem er hörku dugleg hestakona í Sörla í Hafnarfirði. Hanna Rún nemur þessa dagana hestafræði við Hólaskóla. Hún hefur komið sér upp keppnishestum á eigin spýtur og náð á þeim góðum árangri. Hún segir að eitt það mikilvægasta sem hún hafi lært í hestamennskunni hafi norski knapinn Stian Pedersen kennt hanni; að vera jákvæður gagnvart hestinum og öðru fólki og muna alltaf eftir að brosa.
Hægt er að kaupa áskrift að Hestablaðinu og Eiðfaxa í síma 511-6622.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH