Haukur nýr formaður GDLH
Aðalfundur Gæðingadómarafélagsins fór fram í Vindási félagsheimili Borgfirðings miðvikudaginn 27. nóvember, þar fóru fram hefðbundin aðalfundarstörf.
Nýr formaður var kjörinn á fundinum en það er Haukur Bjarnason í Skáney, hann tekur við af Jóni Þorbergi Steindórssyni sem hefur verið formaður félagsins frá árinu 2019.
Ásamt Hauki sitja nú í stjórn sem aðalemnn Ágúst Hafsteinsson, Ingi Björn Leifsson, Elvar Logi Friðriksson og Oddrún Ýr Sigurðardóttir í varastjórn sitja þau Erla Guðný Gylfadóttir og Guðmundur Þór Elíasson.