Frítt inn á sýningu U21 og hæfileikamótunar
Í dag kl. 13:00 hefst sýning í Víðidalnum í Reykjavík. Þá mæta knapar úr hæfileikamótun LH
með hesta sína og gefa áhorfendum tækifæri til að sjá hvernig vinnuhelgar hæfileikarmótunar fara fram. Fjallað verður um vinnu við hendi, sætisæfingar og hvernig blanda megi fimiæfingum inn í þjálfun gangtegunda. Þá fá gestir einnig að kynnast því hvernig grunnurinn er lagður að skeiðinu, skeiðuppbyggingu og gangtegundaþjálfun. Í Hæfileikamótun er lögð er áhersla á að höfða til metnaðarfullra afreksknapa á aldrinum 14- 17 ára sem m.a. stefna á að keppa fyrir Íslands hönd í framtíðinni. Sigvaldi Lárus Guðmundsson mun stýra dagskránni en hann er yfirþjálfari Hæfileikamótunar.
Þar á eftir er komið að U21 landsliðshópnum að láta ljós sitt skína. Hópurinn telur 14 knapa sem stefna öll á að komast á Heimsmeistaramótið í Sviss. Árangur U21 liðsins í á HM í Hollandi 2023 var einkar glæsilegur, en liðið náði þá í 7 heimsmeistaratitla og ein silfurverðlaun og komust allir keppendur á pall sem var hreint út sagt frábær árangur.
„Allir U21 árs knaparnir munu mæta á staðinn og margir þeirra koma á þeim hesti/hestum sem þeir stefna með á HM í Sviss 2025. Það munu koma fram fjórgangspör, slaktaumatölts pör, skeið pör, tölt pör og fimmgangs pör. Sýningin verður blanda af flottum skrautreiðar atriðum en þó er meirihlutinn í sýnikennslu formi þar sem ætlunin er að gefa innsýn í það hvað knaparnir eru að gera með sínum hestum til að undirbúa þá fyrir sumarið.” sagði Hekla Katharína Kristinsdóttir þjálfari U21 árs hópsins.
Frítt er inn og hvetjum við alla til að mæta, styðja og fylgjast með stjörnum framtíðarinnar