Veisla í kvöld
Af gríðarlega góðum hestakosti að dæma er ljóst að töltkeppni Meistaradeildar verður spennandi í kvöld og ljóst að margir keppendur ætla sér stóra hluti.
Í eldlínunni verða eflaust þau Jakob Svavar Sigurðsson og Árborg frá Miðey og Sigurbjörn Bárðason og Jarl frá Mið-fossum. Jakob og Árborg sigruðu eftirminnilega gæðingafimina fyrir tveimur vikum og voru, ásamt Sigurbirni og Jarli, í 2-3 sæti Íslandsmótsins í fyrra.
Einnig verður gaman að sjá Þorvald Árna og Smyril frá Hrísum, þeir vöktu verðskuldaða athygli á afmælishátíð FT um liðna helgi. Ekki má heldur gleyma ungu keppendunum þeim Bylgju, Heklu Katarínu og Arnari Bjarka, þau eins og reyndar allir keppendur meistaradeildarinnar geta komið á óvart í kvöld og stolið senunni.
Meistaradeildin hefst kl. 19.30 í kvöld en hún verður sýnd í beinni útsendingu. Hægt er að smella á rauða ramman hér við hlið til að opna fyrir útsendinguna, en hún kostar 499 kr.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH