Tvíburar í tamningu
Nú er spennandi tími runnin í garð fyrir margan hestamanninn því hesthúsin fyllast nú af gæðingum og vel ættuðum vonarstjörnum. Blaðamaður Eiðfaxa átti leið í Húnaþing og kíkti í hesthúsið hjá Helgu og Gunnari á Þingeyrum. Þar er tamningarvertíðin að hefjast og fjöldi efnilegra hrossa komin á hús.
Á meðal þeirra eru tvíburar sem fæddir voru árið 2009, hryssa nefnd Þumalína og hesturinn Tumi en þau eru undan Blæ frá Hesti og Dimmalimm frá Breiðavaði. Systkinin eru aðeins fortamin, bera af sér góðan þokka og fara um á mjúku tölti og taktföstu brokki.
Helga segir að þar sem tryppin séu bæði fremur smá þá sé ekki líklegt að hægt verði að setja fullvaxinn knapa á bak en til stendur að gangsetja þau með vinnu við hönd og í tvöföldum taumi til að byrja með og sjá síðan til með framhaldið. Tumi og Þumalína eru bæði þæg, meðfærileg og mjúkgeng því ekki óhugsandi að þau geti orðið hinir fullkomnu barnahestar fyrir smávaxna knapa í framtíðinni.
Gaman verður að heyra hvernig gengur með Tuma og Þumalínu á næstu mánuðum og mun Eiðfaxi fylgjast með þegar líður á veturinn.
Ef lesendur Eiðfaxa þekkja til eða hafa fregnir af tvíburum væri gaman að fá upplýsingar um það á netfangið [email protected]
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH