Langbrókarmót í Varmadal
Hestamannafélagið Hörður stendur fyrir svokölluðu Langbrókarmóti föstudaginn 5. júní.
„Nú er komið að því, Langbrókin leggur af stað um kl 18:30 frá Skiphól við vaðið neðst í hesthúsahverfinu og við ríðum upp að Varmadal þar sem við getum sleppt hestunum á túnið, þá hefst keppni í Brölti, Lulli, skeifnakasti og pokahlaupi að hætti Valkyrja Harðar. Þemað er SKRAUTLEGT!
Eftir mótið liggur leiðin heim í reiðhöllina okkar þar sem við munum grilla með karlafélaginu 8villtum:
Verð fyrir grillmat 2000 kr – Hver sér um eigin vökvun 🙂 Í fyrra vorum við 65 konur sem skemmtum okkur saman! Komdu og vertu með,“ segir í tilkynningu frá kvennadeild Harðar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH