Sjöunda spurning í Jólameistara Eiðfaxa
Það styttist óðum í jólin og því ekki seinna vænna en að hefja leika í Jólameistara Eiðfaxa sem er spurningakeppni þar sem lið Meistaradeildar Líflands í hestaíþróttum etja kappi saman. Munu liðin svara hinum ýmsu spurningum tengdum jólunum eða Meistaradeildinni.
Næstu daga munum við birta eina spurningu í einu og verður spennandi að sjá hvaða lið stendur uppi sem Jólameistarinn 2024.
Komið er að næstu spurningu en eftir fjórar spurningar lið Sumarliðabæjar er á flugi og leiðir enn með 6 stig. Næst er spurt: Hvaða knapi sigraði fyrst keppni í gæðingalist í Meistaradeild og fyrir hvaða lið keppti hann? Tvö stig fengust fyrir spurninguna, eitt fyrir réttan knapa og eitt fyrir rétt lið.
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Dalvar jafnar heimsmet Viðars
Jökull styrkir ungu knapana sína