Grímu og jafnvægistölt
„Laugardaginn 19. janúar verður haldið opið Grímu og jafnvægistölt í reiðhöllinni í Mosfellsbæ kl 13:00.
Mótið verður tvískipt en byrjað verður á Grímutölti og jafnvægistölt strax á eftir.
Skráningargjald er 1000 kr fyrir unglinga og ungmenni, 1500 kr fyrir fullorðina, frítt fyrir börn og polla.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum :
Pollar (teymdir)
Pollar (ríða einir)
Börn
Unglingar
Ungmenni
Fullorðinsflokkur
Heldri manna og konu flokkur
Jafnvægistölt :
Tveir í braut í einu, tveir hringir riðnir, bannað að fara á stökk,
hver keppandi er með eina könnu með vatni í, á könnuni er teip
og bætist við tími við hvert teyp sem vatnið fer niður fyrir,
stig fást fyrir tíma en einnig verða gæði gangtegundarinnar dæmd.
Verðlaun verða veitt fyrir flottasta búninginn í hverjum flokki ( nema polla flokkum )
Skráning verður í höllinni á milli 11 – 13
Seldar verða veitingar,“ segir í tilkynningu frá hestamannafélaginu Herði
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH