Glódís Rún og Kamban efst

  • 17. ágúst 2012
  • Fréttir
Glódís Rún og Kamban efst

Þá er töltinu lokið á Íslandsmótinu og við tekur slaktaumatölt. Glódís Rún Sigurðardóttir er efst í tölti barna á Kamban frá Húsavík. Þau hlutu 6,63 í einkunn. Í öðru sæti var Rúna Tómasdóttir á Brimli frá Þúfu í Landeyjum með einkunnina 6,57 og í því þriðja voru jafnir þeir Viktor Aron Adolfsson á Sólveigu frá Feti og Arnar Máni Sigurjónsson á Draumi frá Hjallanesi með einkunnina 5,93.

Niðurstöður úr forkeppni í tölti barna:
 
Sæti   Keppandi
1   Glódís Rún Sigurðardóttir / Kamban frá Húsavík 6,63
2   Rúna Tómasdóttir / Brimill frá Þúfu í Landeyjum 6,57
3-4   Viktor Aron Adolfsson / Sólveig frá Feti 5,93
3-4   Arnar Máni Sigurjónsson / Draumur frá Hjallanesi 1 5,93
5   Annika Rut Arnarsdóttir / Gáta frá Herríðarhóli 5,80
 
6   Katrín Eva Grétarsdóttir / Flinkur frá Vogsósum 2 5,77
7   Annabella R Sigurðardóttir / Dynjandi frá Hofi I 5,73
8   Anton Hugi Kjartansson / Sprengja frá Breiðabólsstað 5,67
9-10   Þórunn Ösp Jónasdóttir / Ösp frá Litlu-Sandvík 5,43
9-10   Kristófer Darri Sigurðsson / Krummi frá Hólum 5,43
 
11   Svanhildur Guðbrandsdóttir / Stormur frá Egilsstaðakoti 5,37
12   Þorvaldur Ingi Elvarsson / Saga frá Búð 2 5,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link