Lið Vélfangs/Brimhesta í Vesturlandsdeildinni
Vesturlandsdeildin verður haldin í vetur í Reiðhöllinni í Faxaborg í Borgarnesi. Fyrsta keppniskvöldið verður þann 25.febrúar næstkomandi þegar keppt verður í fjórgangi.
Í tilkynningu frá Vesturlandsdeildinni er nú fyrsta liðið kynnt til leiks en þau eru alls átta talsins, í yfirlýsingunni segir:
Fyrsta lið sem við kynnum er lið Vélfangs/Brimhesta og saman stendur af fimm knöpum og við hlökkum til að sjá sem flesta í höllinni með okkur í vetur.
Liðsstjóri, Fanney Gunnarsdóttir
Bjarki Fannar Stefánsson
Ylfa Guðrún Svafarsdóttir
Thelma Rut Davíðsdóttir
Laufey fríða Þórarinsdóttir