Gamlir refir áttu brekkuna-

  • 26. júní 2012
  • Fréttir
Gamlir refir áttu brekkuna-

Hringsfélaginn Stefán Friðgeirsson og stóðhesturinn Dagur frá Strandarhöfði fóru mikinn hér í forkeppni A-flokks gæðinga. Þessir síungu vinir eru reynsluboltar í greininni en þetta er í fimmta sinn sem þeir keppa á landsmóti. Dagur er 17 vetra og knapinn sjálfur 65 ára og eru þeir eflaust samanlagðir aldursforsetar meðal keppenda.

Þeir standa ávallt fyrir sínu þó þeir etji sífellt kappi við sér yngri keppinauta. Hlutu þeir nú glæsilega 8,53 í einkunn fyrir örugga og skemmtilega sýningu sem uppskar mikinn fögnuð áhorfenda og eru í öðru sæti sem stendur.

Mikið var skrafað um faðerni Dags í vetur í fyrra, Hann var skráður undan heimsmeistaranum Baldri frá Bakka en DNA próf sýndu að svo var ekki. Uppruna hans var leitað og í ljós kom að faðir Dags er Gandur frá Skjálg undan Náttfara frá Ytra-Dalsgerði.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link