Úrtaka fyrir KS-deildina

  • 23. desember 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Auglýst er eftir einu liði til þáttöku í deildinni.

Úrtaka fyrir KS-Deildina fer fram í Svaðastaðahöllinni 15. janúar 2016. 
Auglýst er eftir einu liði til þáttöku í deildinni.

Úrtakan fer þannig fram að keppt verður í 4g. og 5g. 
Í úrtöku skulu mæta 2 keppendur úr hverju liði og skulu báðir ríða hvora grein. 
Samanlagður árangur gildir til úrslita. Ekki þarf að vera búið að fullmanna liðið þegar úrtakan fer fram og hafa sigurvegararnir tíma til 31. janúar til að tilkynna endanlegt lið.

Lið sem ætla í úrtöku eru beðin um að skrá sig á netfangið [email protected] þar sem kemur fram nafn keppenda og hesta fyrir 10.janúar 2016. 
Allar nánari upplýsingar veitir Eyþór í síma 848-2725

Keppniskvöld KS-Deildarinnar

15. janúar – Úrtaka
17. febrúar – Fjórgangur
2. mars – Fimmgangur
16. mars – Tölt
30. mars – Gæðingafimi
6. apríl – Slaktaumatölt og skeið

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link