Öryggisdaga í Líflandi
Lífland býður upp á 15% afslátt af reiðhjálmum, bakbrynjum, úlpu með innbyggðum brynjum, öryggisvestum, endurskinsvestum, endurskinspískum, ásamt ýmiskonar endurskinslausnum fyrir hesta, knapa og gæludýr. Tilboðið gildir frá 26.-31. október 2015.
Á Öryggisdögum Líflands má einnig finna öryggisbelti, öryggisnet og öryggisgrindur til að tryggja öryggi hunda í bílum.
Lífland vill stuðla að auknu öryggi hestamennskunnar og vitað er að með endurskini sést viðkomandi allt að fimm sinnum fyrr en ella.
Mikilvægt er að auka sýnileika knapa og hesta í skammdeginu. Vert er að taka fram að gott er að nota endurskinið bæði á knapa og hest þar sem þeir geta orðið viðskila.
Nánari upplýsingar má finna hér: http://www.lifland.is/is/frettir/oryggisdagar-i-liflandi
Styttu haustið með EiðfaxaTV