Langar þig að starfa með framhaldsskólanefndinni ?
„Umsóknir um þátttöku í framhaldsskólanefnd hestaíþrótta hefur hér með hafist. Framhaldsskólanefndin samanstendur af hestafólki sem stundar nám við framhaldsskóla og skipuleggur saman hið árlega framhaldsskólamót í hestaíþróttum þar sem skólar víðsvegar um landið mæta og taka þátt. Störf nefndarinnar eru fjölbreytt, áhugaverð og skemmtileg. Við auglýsum eftir fólki sem hefur áhuga á að starfa í nefndinni með okkur í vetur. Í umsókninni þarf að koma fram helstu upplýsingar um ykkur, fullt nafn, aldur, símanúmer, í hvaða skóla þið eruð og afhverju þið hafið áhuga á að starfa í nefndinni.
Umsóknir þurfa að berast inn fyrir þann 31. október næstkomandi á [email protected]. Ef það vakna einhverjar spurningar getið þið haft samband í síma 847-1279 eða sent e-mail.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH