Aðalfundur HÍDÍ
„Aðalfundur HÍDÍ verður í sal LH í Laugardal mánudagskvöldið 28.janúar kl.20:00. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf. Vonandi mæta sem flestir,“ segir í tilkynningu frá stjórn HÍDÍ.
Þá hefur stjórn og fræðslunefnd HÍDÍ hafa ákveðið að upprifjunarnámskeið verður annars vegar haldið miðvikudaginn 13.febrúar kl.17-22 í Reykjavík (nánari staðsetning auglýst síðar) og hins vegar sunnudaginn 3.mars kl.10-15 á Sauðárkróki.
„Einnig hefur verið ákveðið að halda nýdómaranámskeið í vor ef næg þátttaka næst – lágmark 15 manns.
Fyrri hluti námskeiðsins (bóklegt) yrði á sumardaginn fyrsta þann 25.apríl og skriflegt/munnlegt próf daginn eftir þann 26.apríl.
Seinni hluti námskeiðsins (verklegt+próf) yrði þá helgina 1.-.5.maí í tengslum við Reykjavíkurmótið í Víðidal.“
Nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu auglýst síðar – einnig er hægt að fylgjast með á vefsíðu félagsins www.hidi.is.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH