Skráningar á kynbótasýningar vorsins
„Í dag 15. apríl var opnað á skráningar á allar kynbótasýningar vorsins þannig að nú ættu menn ekki að þurfa að vera á síðustu stundu að skrá. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Einnig er hægt að fara inn á heimasíðu Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins www.rml.is en þar er valmynd á forsíðunni „skrá á kynbótasýningu“. Á sömu heimasíðu undir búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar má finna leiðbeiningar um rafræna skráningu á kynbótasýningu. Síðasti skráningardagur er að jafnaði viku fyrir sýningu (oftast á föstudegi), nema í þeim tilfellum þar sem sýning fyllist þá lokast sjálfkrafa á sýninguna, þó svo skráningarfrestur sé ekki útrunninn. Eigandi/umráðamaður hrossins verður þá að velja aðra sýningu. Lena Reiher og Oddný Kristín Guðmundsdóttir munu leiðbeina þeim sem þess þurfa í síma 516-5000, einnig verður hægt að senda þeim tölvupóst á netföngin [email protected] og [email protected]. Hér fyrir neðan má sjá sýningar vorsins og hvenær er síðasti skráningar- og greiðsludagur.
|
Dags. |
Staður |
Loka skráningar- og greiðsludagur |
|
29.4-3.5 |
Skagafjörður |
Föstudagur 19. apríl |
|
6.5- 10.5 |
Selfoss |
Föstudagur 26. apríl |
|
13.5-17.5 |
Víðidalur |
Föstudagur 3. maí |
|
15.5-17.5 |
Akureyri |
Þriðjudagur 7. maí |
|
21.5-24.5 |
Sörlastaðir |
Föstudagur 10. maí |
|
21.5-24.5 |
Hvammstangi |
Föstudagur 10. maí |
|
27.5-31.5 |
Selfoss |
Föstudagur 17. maí |
|
27.5-31.5 |
Skagafjörður |
Föstudagur 17. maí |
|
27.5-28.5 |
Hornafjörður |
Föstudagur 17. maí |
|
29.5-31.5 |
Stekkhólmi |
Þriðjudagur 21. maí |
|
3.6-7.6 |
Melgerðismelar |
Föstudagur 24. maí |
|
3.6-14.6 |
Hella |
Föstudagur 24. maí |
|
10.6-14.6 |
Miðfossar |
Föstudagur 31. maí |
Allar upplýsingar um röðun niður á daga munu birtast á heimasíðu RML, www.rml.is, þegar þær eru klárar sem verður nokkrum dögum fyrir sýningu.
Verð fyrir fullnaðardóm er 18.500 kr en fyrir byggingadóm/hæfileikadóm 13.500 kr. Endurgreiðslur á sýningargjöldum koma því aðeins til greina að látið sé vita um forföll fyrir kl. 16:00 síðasta virka dag fyrir sýningu í síma 516-5000 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og [email protected] . Endurgreitt er kr. 11.000,- fyrir hross sem skráð hefur verið í fullnaðardóm og kr. 8.000,- fyrir hross sem hefur verið skráð í sköpulags- eða hæfileikadóm. Slasist hross eftir að sýning hefst er sama hlutfall endurgreitt gegn læknisvottorði.
Minnum á að ekki er hægt að skrá hross á kynbótasýningu nema þau séu örmerkt og allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr öllum stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir í WF að búið sé að taka blóðsýni og röntgenmynda vegna spatts.
Nánari upplýsingar um reglur og annað sem viðkemur kynbótasýningum má finna á heimasíðunni www.rml.is eða hringja í síma 516-5000 hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin [email protected] og [email protected],“ segir í tilkynningu frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins ehf.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH