Æskulýsverðlaun Geysis
Á jólaskemmtun hestamannafélagsins Geysis sem haldin var síðastliðin föstudagskvöld var frábær matur og mikið gaman auk þess var fjöldi verðlauna veittur…
Ungafólkið hjá Geysi hefur staðið sig frábærlega á árinu, bæði innanlands sem á erlendri grundu. Að þessu sinni veitti Geysir þeim Guðmundu Ellen Sigurðardóttur, Ragnheiði Hallgrímsdóttur og Heklu Katharínu Kristinsdóttur eignargripi fyrir frábæran árangur á árinu.
Má nefna að Guðmunda Ellen varð íslandsmeistari í tölti unglinga á íslandsmóti yngri flokka, Ragnheiður komst í B-úrslit í T2 á norðurlandamótinu og Hekla Katharína varð tvöfaldur íslandsmeistari í tölti og fjórgangi á íslandsmóti yngir flokka, einnig var hún kosin efnilegsti knapi ársins á uppskeruhátíð hestamanna sem haldin var í byrjun nóvember. Einnig stóðu þær sig vel á öðrum mótum á árinu.
Óskum við þeim til hamingu með árangurinn. Hér fylgir mynd með af verðlaunahöfunum Guðmundu Ellen (t.v) Ragnheiður (miðjunni) og Marjolijn Tiepen en hún tók við viðurkenningunni fyrir hönd Heklu Katharínu vegna þess að Hekla var önnum kafin í námi á Hólum og komst því miður ekki.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH