Keppt í þremur flokkum
Haldið verður ísmót hjá hestamannafélaginu Spretti í boði Meistaradeildarliðs Spónnar.is/Heimahaga. Mótið verður á þriðjudaginn næstkomandi, þann 21. janúar klukkan 18:00 niðri á nýja keppnisvellinum okkar. Keppt verður á beinni braut.
Flokkarnir sem eru í boði eru:
- 17 ára og yngri
- Áhugamannaflokkur
- Opinn flokkur
Mótið verður með einföldu og skemmtilegu sniði, vegleg verðlaun verða í boði. Hlökkum til að sjá sem flesta skemmta sér saman. Engin skráning fyrirfram, bara að mæta klukkan 18:00 niður á nýja keppnisvöll Spretts. Skráningargjald er 500 krónur og greitt við vallarendann. Skráningargjöld renna til tækjakaupa félagsins, velunnarar Spretts er frjálst að greiða hærri skráningargjöld.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH