Mun flugdólgurinn koma aftur ?
Laugardaginn 1.febrúar fer tram hið árlega grímutölt Harðarmanna í Mosfellsbæ. Keppt er í tölti í öllum flokkum og auðvitað valinn „Flottasti búningurinn“ en óhætt er að segja að keppnisandinn sé á topp plani hjá öllum aldurshópum og búningarnir ekkert slor!
Skráning hefst að morgni keppnisdags í Reiðhöllinni kl 11 – 12.30 og hefst síðan mótið á Pollar teymdir kl 13:00. Skráningagjald er 1000 kr en frítt fyrir polla og börn. Veitingasalan verður opin.
Frosti „Flugdólgur“ hreppti Búningabikarinn í Karlaflokk í fyrra.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH